- Þriðjudagur, 06. nóvember 2012
Hvalur gleypti þorsk með gervitunglamerki
Merkið skráði ætishegðun hvalsins í mánuð
Gögn frá einu af gervitunglamerkjunum sem rannsóknafyrirtækið Laxfiskar festi á þorska í apríl s.l. sýndu að þegar þorskurinn hafði borið merkið í tæpa fimm mánuði var hann étinn af hvali (búrhvali). Merkið var í hvalnum í rúman mánuð þar til hann skilaði því frá sér og það flaut upp á yfirborðið. Nokkrum dögum seinna hófust svo sendingar frá merkinu upp í gervitungl, samkvæmt áætlun.
Merkið hafði safnað gögnum samfellt allan tímann síðan það var sett á þorskinn um vorið þar með talið á meðan það var í hvalnum. Það gefur einstakar upplýsingar um hegðun hvalsins yfir þennan mánaðartíma.